Aldísin

"Our lives begin to end the day we become silent about things that matter" (Martin Luther King)

mánudagur, desember 18, 2006

Samheitalif Viagra

Actavis er að hefja framleiðslu á nýju samheitalyfi fyrir Viagra, gott mál, en vitið þið hvað það á að heita??


Uppstúfur!

hehe í anda jólanna en auðvitað er þetta bara grín, vil svona taka það fram, maður veit aldrei hversu gáfað fólk les þessa blessuðu síðu:)
kv A.

miðvikudagur, desember 06, 2006

Hvar er snjórinn?

Jæja þá er maður komin í Jólafrí :) Búið að henda upp slatta af jólaskrauti hjá okkur og allir að detta í jólagírinn. það eina sem vantar er bara snjórinn!!! hvar er hann? hvert fór hann ?
Við vonum að hann láti sjá sig fljótlega.

Mig langar rosalega að fara til Fríðu systir á Kúbu um jólin! spurning hvort maður eigi að ræna banka eða vinna í lotto??

en hér kemur einn góður:
Sigga litla fór með ömmu sinni í sund, þegar komið var í sturtuna þá bendir Sigga litla á klofið á ömmu og spyr sakleysislega: Amma hvað er þetta? Amman svarar því að þetta sé Kisan. hmm hugsar Sigga og segir svo við ömmu sína: Amma er kisan dauð? .. nei svara Amma, afhverju heduru það? bara útaf því að það lafir út úr henni tungan.

:) góður

síjú A.

laugardagur, október 14, 2006

Er á lífi jú jú ..!

Ég er á lífi enþá, hef bara verið virkilega busy.. skólinn svolítið Heavy en bara gaman. er í mjög skemmtilegum fögum :
Alþjóðavæðingu - sem ég tók lokapróf í þann 6 oktober og náði af sjálfsögðu.
Fríverslunarsamningar og kína - sem er mjög skemmtilegt fag
Organizational Communication - algjör snilld
Fjármálamarkaðir - tókst með óskyljanlegum hætti að ná 7 í prófinu á föstudaginn!
Stjórnun Starfsframa - þetta fag kom mér skemmtilega á óvart og er það mjög praktískt og gott fyrir alla að skoða svolítið sjálfa sig og ákveða hvert er stefnunni haldið, markmiðasetning o.s.frv.

- það hefur lítið annað en skólinn komist að undanfarið og hefur mér algjörlega mistekist að rækta vini mína. sorrý gæs. - en ég veit að þið skiljið mig.

En ég verð að segja frá því að Siggi sonur minn átti að semja ljóð um samveru í vikunni sem leið. Hann tók sér heillangan tíma í að semja ljóðið og svo loks þegar hann var búin flutti hann það fyrir mig. Það hljómaði svona:
samvera er góð,
Ef börnin eru hljóð,
og drekka ekki bjór!

Ég gat ekki varist því að brosa og hafði mig ekki til að setja útá þetta hjá honum þar sem hann var afar stoltur af sinni fyrstu ljóðagerð. Spurning hvort þetta gefi eitthverja ranghugmynd hlustenda um að heimili mitt sé undirlagt í öli?? (sem er mesti miskilningur)

en Gabríel átti líka sitt gullkorn í vikunni sem leið og er hann farinn að skrifa dagbók. Á mánudaginn stóðu eftirfarandi skilaboð í dagbókinni hans:
Mánudagur 9.oktober.2006
í dag fór ég til tannlæknis, það var HRÆÐILEGT!

JÁ, þetta var það helsta sem mánudagurinn bar með sér hjá Gabríel Orra.

en látum þetta duga í bili ..
Hafið það gott ...
A.

þriðjudagur, júlí 18, 2006

Sumarið¨!!

vá hvað ég hef verið ódugleg að skrifa, en reyni að bæta úr því núna..
Strákarnir mínir eru nú í Sumarbúðum við Kaldársel og er það voða skrítið að þessa vikuna þarf maður ekki að púsla neinu en það hefur verið ansi mikið púsl í sumar.
Þetta er frekar erfitt tímabil þegar krakkar eru á aldrinum 8-10 ára þá eru þeir eiginleg of stórir til að vera í pössun eitthvernstaðar en of litlir til að vera einir heima svo leikjanámskeiðin koma sterk inní , svona fyrstu vikurnar - svo nenna þeir ekki - komnir með leið og frv. svo Kaldársel er það þessa vikuna:)

Ég hef verið mikið að vinna, skoppið nokkrum sinnum í vinnuferðir til útlanda og sona í sumar.. en ég er að fara í 2 vikna frí til Spánar þar sem ég ætla að sleikja sólina!! Við strákarnir ætlum að fara til Fríðu systir sem er fararstjóri á Costa Del SOl og ætlum að vera hjá henni, fara yfir til Afríku,fara á nautaat, liggja við sundlaugarbakkan og fara á ströndina og í vatnsrennibrautargarðinn og og og ,,
já en allavega ætlum við að njóta þess að vera saman og hafa það gott!

hlakka mjög mikið til að sjá Fríðu systir og svo koma Hildur systir, Elli og Emil Snær til okkar og við verðum öll saman í viku:)

Ég er að fara í kvöld að hitta stelpurnar úr HR .. við hittumst alltaf reglulega og er mig farið að hlakka til að sjá þær.

en bless í bili
A

sunnudagur, maí 07, 2006

Afmælisbörn vikunar

jæja þá er litla systir mín Hildur (á svo eina yngri sko) orðin 30. mynnir mann á hvað maður er orðin gamall:( en okkur var boðið í afmælismat í gærkvöldi og var þar fjölskyldan okkar og Ella (mannsins hennar tilvonandi) og voða stuð..mikið dansað, drukkið og hlegið. Elli verður 30 í júni svo það var uppá mikið að halda.. svo eru þau að fara að gifta sig í mai eftir ár og allt að gerast:) til hamingju með það!!
Kolla mákona átti líka afmæli 4 mai eins og Hildur systir mín og hin Kolla mákona (ekki allir sem eiga tvær kollur mákonur) átti afmæli 2 mai Til hamingju kollur:)

en ss það var mjög gaman þessa helgi og kom það svolítið niður á lærdómnum en þá er bara að bretta upp ermar og spýta í lófana og ná því upp.